Verð á vefsíðum á Íslandi er mjög misjafnt. Hér sérðu hvernig verðið skiptist, hvað er yfirleitt innifalið og hvernig Vebbi ber sig saman. Allar tölur eru með VSK.
Fá tvær útgáfur fríttGrunnatriðin
Greitt einu sinni fyrir hönnun og smíði. Hjá hefðbundnum vefstofum er það oft á bilinu 75.000–125.000 kr. fyrir einfaldar síður og fyrirtækjasíður, og hærra fyrir vefverslanir og sérsmíði.
Hýsing, öryggisuppfærslur og afritun. Algengt er 6.000–7.500 kr. á mánuði ofan á stofngjaldið.
Hér liggur oft falinn kostnaður. Margir bjóða eina breytingu á mánuði og annað er unnið eftir tilboði eða tímagjaldi.
Lénið (t.d. fyrirtaeki.is) er skráð sérstaklega og er alltaf í þinni eigu.
Samanburður
Dæmi byggð á birtum verðskrám íslenskra vefstofa í september 2026, með 24% VSK.
| Vebbi | Einföld síða hjá vefstofu | Fyrirtækjasíða hjá vefstofu | |
|---|---|---|---|
| Stofngjald | 0 kr. | 74.388 kr. | 123.988 kr. |
| Mánaðargjald | 12.490 kr. | 6.188 kr. | 7.428 kr. |
| Breytingar á mánuði | 5 + ótakmarkað fyrstu 14 dagana | 1 | 1 |
| Sérð vefinn áður en þú borgar | Já, tvær útgáfur | Nei | Nei |
| Binding | Engin | Misjafnt | Misjafnt |
| Samtals fyrsta árið | 149.880 kr. | 148.644 kr. | 213.124 kr. |
| Samtals eftir 2 ár | 299.760 kr. | 222.900 kr. | 302.260 kr. |
Innifalið
Vefáskrift
12.490kr./mán með VSK
Krafa í heimabanka. Hættu hvenær sem er.
Spurningar
Hjá hefðbundnum vefstofum er stofngjald fyrir einfalda síðu eða fyrirtækjasíðu oft 75.000–125.000 kr. með VSK, auk mánaðargjalds. Hjá Vebbi er ekkert stofngjald, bara 12.490 kr. á mánuði með VSK.
Við notum gervigreind og nútímaverkfæri sem gera okkur kleift að smíða vefi mun hraðar. Þess vegna getum við dreift kostnaðinum á mánaðargjaldið og sýnt þér tvær útgáfur áður en þú borgar.
Vefsmiðir á netinu geta verið ódýrari á mánuði, en þá sérðu sjálf/ur um hönnun, texta, uppsetningu og allar breytingar. Hjá Vebbi sjáum við um allt.
Ekkert aukalega. Fyrstu 14 dagana eftir greiðslu eru breytingar ótakmarkaðar og síðan færðu 5 breytingaóskir á mánuði innifaldar.
Já. Lénið er alltaf skráð á þig og vefurinn fer í loftið á því.
Já. Engin binding og ekkert uppsagnargjald.
Lýstu honum í nokkrum setningum. Við sýnum þér tvær útgáfur innan 48 tíma.
Lýsa hugmyndinni